keypis prufa  30 daga

Mindjet Connect

Connect2012

Mindjet Connect opnar nýjar víddir í okkar daglegu störfum, ekki bara í notkun MindManager heldur einnig í samstarfi fyrirtækja og einstaklinga í millum, hvar sem þeir eru staddir í heiminum!

 
Mindjet Connect er einstaklega hagnýt vefhópvinnulausn sem skapar samstarfsvettvang fyrir verkefni með mörgum samstarfsaðilum, hvort sem um er að ræða aðila innan sama fyrirtækis eða mismunandi fyrirækja og/eða landa.  Mindjet Connect kemur í tveimur útgáfum: ókeypis útgáfa þar sem hægt er að vinna með 2 hugkort og Mindjet® Connect Business Edition® sem ætluð er fyrirtækjum og stofnunum og sem er seld í áskrift.


Lykileiginleikar Mindjet Connect eru; öruggt miðlægt vinnusvæði, margir geta unnið í sama skjalinu í einu og breytingar koma fram í rauntíma. Í Mindjet Connect er einnig innbyggt "spjall" þ.e. hægt er skiptast á skriflegum skilaboðum við þá sem eru að vinna í viðkomandi skjali (líkt og MSN).

Í Mindjet Connect eru stofnuð aðgangsstýrð "vinnusvæði" og hægt er að úthluta notendum mismunandi réttindum; stofna skjöl, breyta skjölum eða einungis skoða skjöl. Vefaðgangur er eina skilyrðið fyrir þá sem boðið er inn á  Catalyst vinnusvæði, þ.e. viðkomandi þarf ekki að eiga MindManager til að geta unnið á Mindjet Connect.

Með Mindjet Connect má ná fram miklum sparnaði og hagræði; í ferðakostnaði, vinnutilhögun og tímanotkun!

workspace

Lykileiginleikar Mindjet Connect eru;

Vefaðgangur að skjölum og vinnusvæði
Öruggt miðlægt vinnusvæði
Aðgangsstýring, eigandi vinnusvæðis úthlutar réttindum
Útgáfustýring
Margir geta unnið í sama skjalinu í einu
Breytingar koma fram í rauntíma
Hægt er að bjóða miklum fjölda einstaklinga aðgang að einu vinnusvæði

Nánari upplýsingar:
  1. Mindjet_Connect_DataSheet.pdf