Nýir eigendur Verkefnalausna

Eins og tilkynnt hefur verið höfðu stjórnendur Mindjet ákveðið að íslenska markaðinum skyldi sinnt frá Englandi, en það er okkur sérstök ánægja að tilkynna að sú afstaða hefur breyst. Þannig að þrátt fyrir að í nóvember hafi verið send út andlátstilkynning Verkefnalausna er það með mikilli ánægju sem við tilkynnum að fyrirtækið reis strax aftur upp frá dauðum, hefur fengið nýja íslenska eigendur og er í dag í fullum rekstri sem aldrei fyrr.
Við hjá Verkefnalausnum munum því áfram tryggja ykkur þá góðu þjónustu hér á Íslandi sem áður hefur verið. Við höfum flutt okkur um stað og erum í dag staðsett í Skeifunni 11B 2. hæð í góðu sambýli við Promennt ehf. sem rekur stærsta tölvuskóla landsins.
Fólkið á bak við fyrirtækið í dag er:
Guðmundur Pálmason, framkvæmdastjóri, gudmundur@verkefnalausnir.is
John Yeoman, sölustjóri,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Inga Steinunn Björgvinsdóttir, markaðsstjóri,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.




