Uppfærslusamningur Mindjet
Uppfærslusamningur Mindjet við fyrirtæki og stofnanir
Fyrir milligöngu Verkefnalauna býðst fyrirtækjum að gera uppfærslusamning við Mindjet. Uppfærslusamningur (Maintenance Support Agreement) innifelur uppfærslur á MindManager. Uppfærslusamningur er valkvæmur fyrir stök leyfi en er skilyrði fyrir kaupum á 5 eða fleiri leyfum (IPL stig 5-10 leyfi, 10-49, 50-100). Á þessum stigum fá notendur einn leyfislykill fyrir marga notendur sem einfaldar allt utanumhald.
Sparnaður og hagræði
Með uppfærslusamningi er hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði og hagræði, bæði í utanumhaldi og krónum. Uppfærslugjald nemur 20% af listaverði leyfa en almennt verð er 50% af listaverði leyfis. Þegar ný útgáfa kemur á markað, fá eigendur MindManager nýja leyfislykla senda með tölvupósti.
Samningurinn gildir í eitt ár í senn og endurnýjast sjálfkrafa sé honum ekki sagt upp 8 vikum fyrir lok samningstíma. Samkvæmt samningi eru uppfærslugjöld greidd einu sinni á ári fyrir eitt ár í senn fram í tímann. Sambærilegur uppfærslusamningur er einnig til fyrir hugbúnaðinn Notes Linker.
Hér eru nánari upplýsingar: Uppfærslusamningur Mindjet

