keypis prufa  30 daga

Þjónustusamningur

Þjónustusamningur Verkefnalausna við fyrirtæki og stofnanir

Þjónustusamningur Verkefnalausna gildir eingöngu fyrir 5 leyfi eða fleiri og gildir fyrir þann hugbúnað sem Verkefnalausnir annast sölu á.

Þjónustusamningur Verkefnalausna innifelur eftirfarandi þætti:

Endurgjaldslausa símaþjónustu frá þjónustuborði Verkefnalausna
Forgang við afgreiðslu á verkbeiðnum
10% afslátt af listaverði ráðgjafavinnu og vinnu við verkefnastjórnun
15% afslátt af opnum námskeiðum (sjá nánar *)
20% afslátt af lokuðum námskeiðum (sjá nánar*)
Árlegt þjónustusímtal frá starfsmanni Verkefnalausna
Samningurinn gildir eitt ár í senn og endurnýjast sjálfkrafa sé honum ekki sagt upp átta vikum fyrir lok samningstíma.

Kostnaður vegna þjónustusamnings:

Gjaldtaka fyrir 5-99 leyfi er 1% af listaverði leyfis per mánuð, þó aldrei lægri en kr. 4.000.
Gjaldtaka fyrir 100 leyfi eða fleiri er 0,75% af listaverði leyfis per mánuð.

Námskeið Verkefnalausna

*Opin námskeið
Verkefnalausnir bjóða upp á opin námskeið í notkun MindManager, JCVGantt, hugkortagerð og verkefnastjórnun. Námskeiðsdagskrá, lýsing á innihaldi og skráning á opin námskeið er að finna á heimasíðu Verkefnalausna http://www.verkefnalausnir.is/

*Lokuð námskeið
Verkefnalausnir bjóða fyrirtækjum upp á lokuð námskeið sem sniðið eru að þeirra þörfum. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Verkefnalausnum í síma: 565 7272